2022/08/23 at 8:21 am

Tyrkland

15. til 27. september 2024

Ferðalýsing

Tyrkland 15.-27. september 2024

Vegna mikils áhuga verður haustferð á svipaðar slóðir og í vorferð þessa árs. Líkt og þá verður ferðin helguð menningu og sögu þessa samfélags. Við munum kynnast landinu, staldra góða stund við í Istanbúl, heimsækja höfuðborgina Ankara og eyða drjúgum tíma í Kapadókíu þar sem sjá má einstaka híbýlagerð og kynnast ógleymanlegri, ævagamalli menningu. Ferðin um Tyrkland hefst og lýkur í hinni fornu borg Istanbúl. Í þessari ferð reynum við að kynna okkur þetta samfélag, sögu þess og menningu. Hugsanlega gætu þó orðið einhverjar breytingar á dagskrá sem þá verða rækilega kynntar. Sætum fer ört fækkandi en enn er möguleiki.

Smellið á mynd til að stækka.

Þjóðhátíð í Istanbúl
Þjóðhátíð í Istanbúl

Frá Þjóðminjasafninu í Ankara
Frá Þjóðminjasafninu í Ankara

 

Gott að hafa í huga