2022/08/23 at 8:21 am

Aðventuferð til Gdansk og Kraków 2025

30. nóvember til 11. desember

Ferðalýsing

Aðventuferð til Gdansk og Kraków

Að efna til ferðar til Póllands um miðjan vetur, er það ekki klikkun? Að fenginni reynslu er því öfugt farið. Á þessum árstíma er auðvelt að heillast af andanum í þessum yndislegu borgum, Gdansk og Kraków. Við munum kynnast borgunum tveimur sem eru ólíkar en búa báðar yfir heillandi fegurð. Við kynnumst þjóð Kasjúba í Kasjúbíu. Boðið verður uppá skreppitúr til Nova Huta og Varsjár og innifaldar í verði eru tvær ferðir inn í heima fortíðar, önnur geymir kolsvarta sögu, hin dásamlega birtu.

Áhugasamir gera rétt í að hafa samband og bóka (án skuldbindingar) sem fyrst.

Söguferðir s: 611 4797
Þorleifur Friðriksson

30. nvember – sunnudagur
Flug  Keflavík – Gdansk -  20:05- 00:50.

1. desember  - mánudagur
Okkar bíður rúta við flugstöðina í Gdansk. Komum á hótel um miðnætti að okkar tíma. Gott hótel á besta stað í borginni.Hér gistum við dagana í Gdansk. Gisting hvíld, göngutúr um hádegi. Róleg söguganga. Við tökum okkur þann tíma sem við þurfum, göngum hægt og njótum, stoppum kannski á kaffihúsi. Gamli bærinn er ekki stór og því vegalengdir ekki miklar. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli? Góð veitingahús í stuttu göngufæri.

2. desember - þriðjudagur
Ökuferð um Þríborgina; Gdansk, Sopot og Gdynia. Kynnumst sögu og sérkennum þessara þriggja borga sem liggja saman eins og Reykjavík, Kópavogur og Garðabær en eru mjög ólíkar. Stefnum að ná í hádegistónleika í dómkirkjunni í Oliva. 300 ára gamalt orgel og gríðarlega góður hljómur.

3. desember - miðvikudagur
Frjáls morgun. Kl. 13 hittumst við í anddyri hótelsins og höldum í  ferð um Kasjúbíu, heimkynni Kasjúba. Kynnumst menningu þeirra. Ef vilji er þá efnum við til partýs að hætti þessarar merkilegu litlu þjóðar. Matur, söngur og spilverk.

4. desember - fimmtudagur
Frjáls dagur. Safnaskoðun þeirra sem vilja. Ferð inn í fortíð seinni  heimsstyrjaldarinnar. Eitt flottasta safn í Evrópu um þann hildarleik.

5. desember - föstudagur
Förum með lest til Kraków. Gistum á besta stað í Kraków og dveljum á þessu góða 4 stjörnu hóteli dagana í Kraków.

6. desember - laugardagur
Að fenginni góðri hvíld og morgunverði verður rólegt rölt um Kazimers hverfið og gamla borgarhlutann. Þessi dagur verður þægilegt rölt með stoppi eftir þörfum. Á vegi okkar verða stórmerkileg listasöfn mörg skemmtileg kaffihús, barir og verslanir, Wawel-höllin að ógleymdum öllum þeim stílbrygðum og sögu sem ber fyrir augu í þessari fögru borg. Hér er tilvalið að líta við í júgend kaffihúsi. Óbreytt síðan 1910. Algjört möst fyrir rómantíkera eins og okkur.

7. desember - sunnudagur
Ferð inn í birtu fortíðar. Heimókn í saltnámurnar í Wieliszka (á lista UNESCO)

8. desember - mánudagur
Ferð inn í kolsvart myrkur fortíðar. Heimsókn í manngert helvíti; Auschwitz- Birkenau. Ekki fyrir viðkvæma. Fyrir þá sem ekki treysta sér eða hafa ekki áhuga er þessi dagur tilvalinn fyrir einstaklingsbundna rannsóknarferð um nú kunnuglegar slóðir. Væri t.d. hægt að skoða tvö mjög athyglisverð listasöfn í hjarta Gamla bæjarins. Klassísk myndlist 19. aldar listasafnið á annari hæð kauphallarinnar á Stóra torginu (Stare Miasto). (Þjóðernisrómantík þjóðar án ríkis). Þjóðarlistasafnið er ul. Jana, (m.a. Leonardo da Vinci, Stúlka með mörð). Alþjóðleg list.

9. desember - þriðjudagur
Frjáls dagur. Valfrjáls dagsferð með lest til Warsjár. Sögurölt um gamla bæinn.

10. desember - miðvikudagur
Boðið uppá skemtilega ferð með sporvagninum til Nowa Huta. Nowa Huta var í frumbernsku sinni sjálfstæð borg og önnur af tveim í heiminum sem var og er fullkomið dæmi um ,,stalínískan barok stíl.“ Borgina sem átti að verða heimili hins ,,stéttvísa verkamanns.“ Nú telst hún vera hverfi í Kraków.

11. desember – fimtudagur
Kl. 11:00. Með rútu til Katowice.  Flogið heim kl. 15.20. Áætluð lending í Keflavík kl. 19:00.

Heildarverð:

  • Verð fyrir einstakling í tvíbýli -   ISK 314.000
  • Verð fyrir einstakling í einbýli -   ISK 385.000

Innifalið:

  • Flug og flugtengd gjöld
  • Gisting 11 nætur á 4 stjörnu hótelum
  • Morgunverður á hótelunum.
  • Allar ferðir samkvæmt dagskrá
  • Ferð  - Heimsókn í saltnámurnar í Wieliszka
  • Ferð - Heimsókn í Auschwitz

Fararstjóri Þorleifur Friðriksson

Gott að hafa í huga