2022/08/23 at 8:21 am
Söguferð til Gdansk og Kraków
28. nóvember. til 9. desember 2024
Ferðalýsing
12 dagar 11 nætur.
Gdansk
28.11.2024 - fimmtudagur
Kl. 18:20 – 22:55. Keflavík-Gdansk. Rúta bíður við flugvöll og ekur okkur á hótel. Gist á hótel Puro, á besta stað í bænum. Gætum snætt síðbúinn kvöldverð á hóteli.
29.11.2024 - föstudagur
Eftir góðan morgunverð verður boðið uppá þægilegt sögurölt um ,,gömlu Gdansk“
30.11.2024 - laugardagur.
Ökuferð um þríborgina; Gdansk, Sopot og Gdynia. Hádegistónleikar í dómkirkjunni í Oliva. Pípuorgel frá 18. öld og magnaður hljómburður.
1.12.2024 - sunnudagur
Þessi dagur er helgaður ,,hulduþjóðinni“ Kasjúbum. Ferð um Kasjúbíu og endað með kasjúbaveislu.
2.12.2024 - mánudagur
Frjáls dagur.
Kraków
3.12.2024 - þriðjudagur
Kl. 11:15. Tökum rútu á lestarstöð. Lestarferð til Kraków. Járnbrautarferð er þægilegur ferðamáti. Við járnbrautarstöðina í Kraków bíður rúta sem ekur okkur á hótel, sem líka heitir Puro og er í gamla gyðingahverfinu Kazimers, á besta stað í bænum.
4.12.2024 - miðvikudagur
Að fenginni góðri hvíld og morgunverði verður rólegt rölt um Kazimers hverfið og gamla borgarhlutann. Þessi dagur verður þægilegt rölt með stoppi eftir smekk og þörfum. Á vegi okkar verða stórmerkileg listasöfn mörg skemmtileg kaffihús, barir og verslanir, Wawel-höllin að ógleymdum öllum þeim stílbrygðum og sögu sem ber fyrir augu í þessari yndislegu borg. Hér er tilvalið að líta við í júgend kaffihúsi við ul. Florianska nr. 45, Kawiarnia Jama Michalika. Algjört möst fyrir romantíkera eins og okkur. Óbreytt síðan 1910.
5.12.2024 - fimmtudagur
Frjáls dagur.
Föstudagur 6. des.Kl. 9:00. Ferð inn í kolsvart myrkur fortíðar. Heimsókn í manngert helvíti; Auschwitz- Birkenau. Ekki fyrir viðkvæma.
7.12.2024 - laugardagur
Kl. 9:20. Ferð inn í birtu fortíðar. Heimsókn í saltnámurnar í Wieliszka (á lista UNESCO sem sameiginlegur arfur mannkyns). Ógleymanleg ferð inn í ótrúlegan heim.
8.12.2024 - sunnudagur
Frjáls dagur. Um kvöldið verður pólsk veisla.
9.12.2024 - mánudagur
Haldið heim. (Um Katowice) 17:15 – 20:35.
Innifalið í verði er:
- Flug og flugtengdir skattar.
- Lestarferð frá Kraków til Gdansk
- Hótel (góð 4 stjörnu) með morgunverði. Rúta til og frá flugvöllum.
- Heimsókn í saltnámuna í Wieliszka Miðar í sporvagn til Nova Huta.
- Heimsókn til Auschwitz-Birkenau Íslensk fararstjórn.